KFUM & KFUK Digraneskirkju | 10-12 ára starf

Velkomin á vefsíðu 10-12 ára starfs KFUM og KFUK

Hér má upplýsingar um starfið, dagskrá, fréttir, myndir o.fl.

KFUM og KFUK heldur fundi fyrir 10-12 ára stráka og stelpur í Digraneskirkju. Fundir eru haldnir á þriðjudögum. Húsið opnar klukkan 16:30 og þá er hægt að fara í ýmis leiktæki. Fundur hefst klukkan 17:00 og stendur í rúma klukkustund. Miðað er við að fundi ljúki kl. 18:15, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Starfið er í samvinnu við Digranessókn.

Hvað er KFUM og KFUK?

KFUM og KFUK er frjáls félagasamtök sem standa á sama grunni og evangelísk-lútherska þjóðkirkjan á Íslandi. Þau vilja starfa innan kirkjunnar og með kirkjunni, en eru þó sjálfstæð og lúta eigin stjórn. Með starfi sínu vilja þau vera þátttakendur í skírnarfræðslu kirkjunnar og styðja foreldra í trúarlegri mótun barna sinna.

Starf KFUM og KFUK er umfangsmikið og fjölbreytt:

Á veturna fer fram barna- og unglingastarf í um 40 deildum víða um land sem halda fundi einu sinni í viku. Íþróttamót og hátíðir eru fastur liður í starfinu ásamt styttri og lengri vettvangsferðum.

Á sumrin taka við sumarbúðir sem KFUM og KFUK reka á fimm stöðum á landinu og leikjanámskeið sem haldin eru í Reykjavík og Kópavogi.

Fullorðinsstarf er mikilvægur þáttur félagsstarfs KFUM og KFUK , samkomur, fræðandi og uppbyggilegir fundir, námskeiðahald, helgarsamverur í sumarbúðum félagsins og fleira.

Leikskólinn Vinagarður er kristilegur leikskóli, staðsettur í Laugardalnum í Reykjavík. Leikskólinn er einkaskóli og rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi.